Nkosi Siekele\' iAfrika
14.04.2008 00:11:17 / nkosi

Moggablogg

Er farinn að láta sjá mig á síðum mbl.is. Helsta ástæða þess er að mig langaði til að hafa þann möguleika að tjá mig um fréttir á þeirri síðu. Einnig var ég orðinn nokkuð pirraður hérna að síðan var ekkert að virka hjá mér nokkra daga.
En þið getið litið á hina síðuna mína hérna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 23:57:31 / nkosi

Sorgarfregn.

Á þriðjudaginn var bárust mér heldur leiðinlegar fréttir. Skólasystir mín og samstarfsfélagi bæði í frystihúsi hérna í eina tíð og af sjúkrahúsinu, Anna Jónsdóttir er dáin.
Ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja því að mér er orða vant.

Kæri Kalli og börn ykkar, ég sendi ykkur og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Aðalsteinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 03:49:59 / nkosi

Svona rétt til...

...áminningar þá langar mig til þess að ítreka við mína vini og ættingja nær og fjær (líklegar þó að þeir sem eru nær taki það til sín), að ykkur er að sjálfsögðu öllum boðið til veislu laugardaginn 5. apríl n.k. Tilefnið og nánari upplýsingar má sjá hérna
Mér þætti gott ef að þið létuð mig vita ef þið ætlið að láta sjá ykkur.

Kv. Nkosi, tilbúinn í teiti.

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 14:20:28 / nkosi

Ég var að lesa...

...alveg hreint frábæra frásögn. Hún Elín Katrín frænka mín var að segja frá sér og sínum og útkoman var stórfín. Það skutust margar minningar upup í kollinn við lesturinn.

Kv. Nkosi

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 01:20:37 / nkosi

Ég er búinn...

...að vera haldinn illvígri bloggstíflu undanfarið. Síðustu dagar hafa verið lítið annað en vinna, borða og sofa. Ég átti t.d. að vera í fríi um síðustu helgi en var þó að vinna aðfaranótt laugardags og einnig á sunnudaginn. Núna er ég á næturvakt og er að nota mér að það er rólegt í augnablikinu.
Annað hef ég ekki að segja, vonandi að andleysið fari nú að hverfa mér svo að ég geti farið að skrifa eitthvað hér af viti (ekki að það hafi svosem gerst oft hjá mér).

Kv. Nkosi hinn stíflaði.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 14:19:39 / nkosi

Þórína syss...

...setti inn nokkrar myndir hjá sér. Ef þið smellið hér þá getið þið séð hvernig umhorfs var heima í Eyjum í morgun. Það er hálf öfugsnúið að hérna fyrir austan þar sem fólk er vant snjónum er rétt smá snjór til að allt sé hvítt, en heima þar sem snjóinn festir að öllu jöfnu ekki hefur ekki sést eins mikill snjór í manna minnum.

Kv. Nkosi (að mestu) í snjóleysi

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 09:54:29 / nkosi

Ég rakst á...

...skrambi góðan brandara þegar ég var að vafra um á netinu. Bloggari nokkur setti nokkra brandara í eitt bloggið hjá sér og þessi var bara ágætur.

Nýlega sendu Sameinuðu þjóðirnar eftirfarandi beiðni til þjóða heims:
„Viljið þið vinsamlegast gefa okkur heiðarlega skoðun ykkar á því hvaða lausn kæmi helst til greina til að koma í veg fyrir matarskort um allan heim.“

Svörin komu mjög á óvart.
Afríkubúar vissu ekki hvað orðið „matur“ þýddi. Austur-Evrópumenn skildu ekki orðið „heiðarlega“ og Vesturlandabúar ekki orðið „skortur“. Í Kína vandræðuðust menn með orðið „skoðun“. Í Miðausturlöndum ríkti óvissa með orðið „lausn“ og í Suður-Afríku klóruðu menn sér í kollinum yfir orðinu „vinsamlegast“.
Í Bandaríkjunum vissi enginn hvað „um allan heim“ þýddi.

Hehehe, Nkosi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 07:26:50 / nkosi

Eitt læt ég...

...fara í taugarnar á mér þessa dagana. :evil:
Það er þegar í sífellu er verið að tala um evróvision. Þetta er (eins og flestir vita) íslenskun á orðinu eurovision. Af hverju er verið að íslenska helminginn af orðinu? Hættið þessu helv... hálfkáki og íslenskið orðið allt eða sleppið þessu. Fyrir mér virkar þetta afskaplega tilgerðarlegt. Ef menn vilja tala um þessa keppni á hinu ástkæra ylhýra þá má t.d. segja evrósýn, en mér finnst það svo sem ekkert betra.
Ef menn vilja fylgjast með og tala um þessa keppni þá gerið mér þann greiða að segja EUROVISION.
Kv. Nkosi

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 07:13:23 / nkosi

Elsku mamma...

...systur mínar, frænkur og í raun allar aðrar konur sem ég þekki og mig vilja þekkja;

    INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN.

Meira var það ekki.
Kv. Nkosi


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 11:16:37 / nkosi

Að hugsa sér...

...að í dag skuli vera 25 ár síðan að elskulega frænka mín hún Guðbjörg kom í heiminn.

Bestasta litla frænka


Elsku frænka, til hamingju (aftur) með daginn.
Bestu árnaðaróskir að austan. Nkosi

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 04:47:58 / nkosi

Mér er spurn...

..Hvað gerðist markvert árið 1968?

Árið 1968 er eitt af því merkara í samtímasögu okkar. Enn þann dag í dag er stór hópur fólks sem kennir sig við þetta ár og kallar sig ´68 kynslóðina. En hvað gerðist svona markvert þetta árið? Hérna koma nokkrir helstu punktarnir.

Þann 13 janúar tók Johnny Cash upp sína frægu „Live at Folsom Prison“ plötu.

Ein frægasta ljósmynd Víetnamstríðsins var tekin þann 1. Febrúar. Myndin varð samstundis fræg um allan heim og vann m.a. til Pulitzer verðlauna árið eftir. Hún varð einnig til þess að almenningsálitið í Bandaríkjunum snérist á móti stríðinu

 Yuri Gagarin, sem varð heimsfrægur fyrir að verða fyrsti maðurinn til að fara út í geiminn, lést þann 27. Mars.

Þann fjórða apríl gerðist sá hörmulegi atburður að Martin Luther King jr. var myrtur.

Söngleikurinn Hárið er er sett á svið í Broadway.

Herra Kristján Eldjárn er kjörinn forseti Íslands þann 30. Júní.   

Bítlarnir gáfu út Hvíta albúmið 22. nóvember

 

En það markverðasta sem að gerðist þetta árið var að þann 5. Apríl fæddist hjónunum Baldri Aðalsteinssyni og Guðbjörgu Hjálmarsdóttur sonur sem fékk nafnið Aðalsteinn.

Í tilefni af þeim merkisdegi býð ég vinum mínum og vandamönnum að koma og gleðjast með mér á veitingastaðnum PEPE‘S á Egilssöðum. Teitið mun hefjast klukkan 20:00.

Hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvernig þeir klæðast en þema kvöldsins er að sjálfsögðu ´68 kynslóðin.

Það væri ekki verra að fá að vita ef þú lesandi góður hefur í hyggju að mæta.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 13:31:12 / nkosi

Ég man eftir...

...því fyrir nokkrum árum að talað var um að lýsa ætti yfir sjálfstæði Vestmannaeyja. Þetta var meira gert í gríni en alvöru. En núna þegar búið er að lýsa yfir sjálfstæði Kosovo var þetta rifjað upp. Talað var við Elliða bæjarstjóra og hann spurður hvort að þetta væri uppi á borðinu hja Eyjamönnum í dag. Það er ég viss um að það eiga einhverjir eftir að taka þetta óstinnt upp og fara að kvarta og kveina yfir þessu. Menn eiga eftir að blanda þessu saman við samgöngumálin, þ.e. göng og Bakkafjöruhöfn. En það verður bara gaman að sjá menn fara að rífast út af einhverju jafn spaugilegu og þessu. :klikk:

En kannski ættu menn að fara að undirbúa sig undir sjálfstæðið. Það þarf þá að huga að forsetaframboði, ríkisstjórn o.fl. sem að fylgir sjálfstæðisbröltinu. Ríkinu Vestmannaeyjum mætti síðan skipta niður í héruð s.s. Elliðaeyjarhérað, Bjarnareyjarhérað o.s.frv. Við myndum að sjálfsögðu setja okkur 200 mílna fiskveiðilögsögu og gætum þar að auki fengið mikið af fólki ofan af fastalandinu í helgarferðir með viðkomu í fríhöfninni og margt þar fram eftir götunum. Vert að skoða nánar. :lol:

Kv. Nkosi


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 04:25:10 / nkosi

Kominn heim...

...eftir skrambi skemmtilegan fund hjá RT-9. Yfirskrift fundarins var Whisky-fundur, en þar fórum við í huganum í kynnisferð um Skosku hálöndin með því að smakka á nokkrum ólíkum skoskum whisky tegundum. Nú hugsa ýmsir efalaust sem svo að þetta sé bara léleg afsökun fyrir fylleríi en því fer fjarri. Við vorum ekki að drekka hinn gullna mjöð heldur að smakka hann og finna mismunandi bragð, ilm og áferð mismunandi tegunda. Síðan var skeggrætt um mismunandi upplifun hvers og eins á smökkuninni. Að þessu loknu fóru nokkrir fundarmenn heim en við sem eftir sátum fengum okkur hinsvegar einn bjórA og vígðum pókerborð sem hann Þór á pizzunni fékk í afmælisgjöf í haust. Þetta var í fyrsta skipti sem ég spila póker en þrátt fyrir það endaði ég ekki síðastur heldur datt ég út úr leiknum réttu megin við miðjan hópinn. :d

En núna er ég að hugsa um að fara að koma mér í háttinn.
Kv. Nkosi.

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 18:38:17 / nkosi

Eitt til...

...viðbótar. Hún Þórína systir mín var allra kvenna duglegust að blogga meðan hún var í Noregi á HM/EM. Einnig var hún ólöt við að setja inn myndir og lofaði því að þær skildu fleiri. En hvað gerðist? Eftir að hún kom heim hefur hún bloggað einu sinni og það var copy/paste blogg og myndunum hefur ekkert fjölgað.
Ég skora því á hana að halda áfram því að hún er búin að sanna það að hún er ljómandi fínn penni þegar að hún nennir að gefa sig að því.
ÁFRAM SVO ÞÓRÍNA.

Kv. Nkosi

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 18:16:37 / nkosi

Þá er bölvuð...

...bloggsíðan komin í lag (vonandi).
Það sama er að segja um heilsuna. Ég fór í vinnu í gærkvöldi, beint úr veikindum á næturvakt. En það hafðist, ég lifið vaktina af og allt gekk vel. Þess vegna er ég búinn að sofa í mest allan dag og ætla að leggja mig aðeins á eftir áður en ég fer aftur á vaktina.

Annað kvöld er ég síðan að fara á fund þar sem að leiða á mig og aðra fundarmenn um hálendi Skotlands (í huganum að vísu). Þetta verður, að mér skilst, gert með því að kynna fyrir okkur nokkrar tegundir af skoskum viskíum. Ekki veitir mér af ef ég ætla að fara til Skotlands í vor.

En hvað um það, ég er að hugsa um að fara að fá mér kvöldmat og leggja mig síðan í smástund.

Kv. Nkosi

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13